Lífrænt er alltaf náttúrulegt

Lífrænt ræktað hráefni inniheldur hærra hlutfall þurrefna, andoxunarefna auk stein- og snefilefna, skv. erlendum rannsóknum. Lífrænt vottaðar vörur innihalda eingöngu náttúruleg innihaldsefni. Séu aukaefni notuð líkt og bragð- eða litarefni eru þau alltaf af náttúrulegum uppruna. 

Frame 03 07 2025 02 32 01
Your paragraph text (3) (1)

Um 350 aukefni útilokuð í lífrænt vottuðum matvörum

Grunngildi lífrænnar ræktunar er að búa til hreina matvöru sem hefur náttúrulegan endingartíma og lit. Þess vegna eru lífrænar vörur almennt með færri aukefni en aðrar vörur. Lífræn vottun Evrópusambandsins útilokar um 350 aukefni úr matvöru. Þau 50 aukefni sem eru leyfð eiga sér náttúrulegan uppruna.