Morgungrautur Gabríels - frá Móðir jörð

Innihald

5 dl bankabygg

2 l vatn

2 epli skorin í litla teninga, (perur eru líka góðar)

1-2 dl rúsínur

1 msk kanill

2 tsk. salt

1-2 dl fræ eftir smekk, t.d. sólblómafræ og/eða graskersfræ.

( 2 tsk. hunang og 1 dl döðlur fyrir sælkerana)

Aðferð

Hráefnið er allt sett í pott t.d. að kvöldi og látið sjóða í u.þ.b 15 mínútur, síðan er slökkt undir og farið að sofa.

Að morgni má hita grautinn upp, þó er ekki síðra að borða hann kaldan t.d. með mjólk eða nota sem músli á súrmjólkina.

Grauturinn þolir vel geymslu í kæli svo tilvalið er að sjóða hann til nokkurra daga í einu.

Uppskriftin dugir fyrir fjóra.

Skærmbillede 2025 11 04 kl. 14.59.34