Lífræni dagurinn haldinn hátíðlegur um allt land

Laugardaginn 21. september verður Lífræni dagurinn haldinn hátíðlegur í þriðja sinn um allt land frá klukkan 11:00 -15:00. Þá munu bændurnir í Yrkju, Syðra-Holti í Svarfaðardal, garðyrkjustöðinni Sólbakka, Ósi í Hörgársveit, Móðir Jörð í Vallanesi á Egilsstöðum og Búland, kúabýli á Hvolsvelli opna dyr sínar fyrir almenningi. Þar að auki verður fjölbreytt dagskrá í Reykjavík á sama tíma á kaffihúsinu Á Bistró í Elliðaárdal.

Yrkja, Syðra-Holti í Svarfaðardal er fjölskyldurekið lífrænt býli með útiræktað grænmeti. Yfir sumarið eru þau með heimasölu, selja grænmetiskassa beint frá býli og halda ýmsa viðburði. Garðyrkjustöðin Sólbakki á Ósi í Eyjafirði eru með lífræna útiræktun grænmetis og heimasölu á haustin. Móðir Jörð í Vallanesi leggur stund á kornrækt og fjölbreytta ræktun grænmetis ásamt tegerð. Ferskt grænmeti og fullunnar matvörur fyrir verslanir og veitingahús. Á staðnum er rekin verslun og veitingahús með grænmetisfæði. Á Búlandi í Austur-Landeyjum reka Guðmundur Ólafsson og Guðný Halla Gunnlaugsdóttir lífrænt mjólkurbú og framleiða mjólk fyrir Biobú.

Á kaffihúsinu Á Bistró í Elliðaárdal verða framleiðendur frá Biobóndanum, Akri, Villimey, Biobú, Eyði-Sandvík, Neðri-Háls og Steinaborg með sýnishorn af vörum frá sér. Þar að auki verður fyrirlestraröð sem hefst klukkan 12:15 þar sem eftirtaldir koma fram:

 Elínborg Erla Ásgeirsdóttir, formaður VOR, fundarstjóri

 Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, matvælaráðherra

 Gunnar Bjarnason, kartöflubóndi í Litlu Hildisey í Landeyjum

Anna María Björnsdóttir, verkefnastjóri Lífræna dagsins

 Ingólfur Guðnason, brautarstjóri garðyrkjuframleiðslu, Garðyrkjuskólanum Reykjum