Jólin og sítrusávextir
Á aðventunni fyllast íslensk heimili af sítrusávöxtum – mandarínum, sítrónum og appelsínum sem notaðar eru í bakstur, glögg og fyrir hátíðarstemmingu. En bak við ilminn leynist oft óvelkominn gestur: hátt magn af varnarefnaleifum í hefðbundið ræktuðum sítrusávöxtum.
Samantekt úr ársskýrslum dönsku Matvælastofnunarinnar og DTU (2017-2024) um varnarefnaleifar í matvælum sýnir að sítrusávextir eru meðal þeirra matvara sem eru langmest úðaðar. Í hefðbundnum appelsínum og mandarínum mælist nær undantekningarlaust fjölbreyttur kokteill af varnarefnum á hýðinu.
Í matvöruverslunum má stundum sjá merkingar á borð við „yfirborðsmeðhöndlað“ við sítrusávexti. Þessi merking felur í sér að ávextirnir hafi verið húðaðir eða sprautaðir eftir uppskeru með efnum sem lengja geymsluþol, draga úr sveppamyndun eða gefa þeim glansandi áferð.
Leyfileg yfirborðsmeðhöndlunarefni samkvæmt reglum ESB eru meðal annars: Carnauba-vax (E903), Glycerólestrar af furuhörpiks (E445), Montansýruesterar (E912), Oxiderað pólýetýlenvax (E914).
Auk þess eru ákveðin sveppaeitur, til dæmis imazalil, leyfð í hefðbundinni framleiðslu eftir uppskeru. Slík efni eru ekki flokkuð sem viðbótarefni heldur sem varnarefni – en má engu að síður nota á ávextina sem við borðum.
Lífrænir sítrusávextir
Lífrænir sítrusávextir eru mun minna mengaðir. Samkvæmt lífrænum reglum ESB er bannað að yfirborðsmeðhöndla lífræna sítrusávexti eða nota varnarefni, hvort sem er fyrir eða eftir uppskeru.
Sumir lífrænir framleiðendur þvo þó ávextina eftir uppskeru og nota náttúrulegt efni úr hvítlauk til að draga úr sveppamyndun, en það telst öruggt og er ekki varnarefni.
Geymsla lífrænna sítrusávaxta
Lífrænar appelsínur, sítrónur og mandarínur endast yfirleitt skemur en þær sem eru yfirborðsmeðhöndlaðar. Til að hámarka ferskleikann er ráðlagt að:
- Geyma þær í ísskáp ef þær eiga að endast lengi
- Forðast plastpoka, þar sem raki getur valdið myglu
- Geyma þær á borði í nokkra daga ef þær verða borðaðar fljótt
Fólk hvatt til að fylgjast með merkingum
Þótt sítrusávextir séu stór hluti af jólahefðum margra, sýna niðurstöður Matvælastofnunar Danmerkur að neytendur ættu að vera vakandi fyrir því að hefðbundnir ávextir eru oft úðaðir mun meira en flestar aðrar matvörur. Sérfræðingar hvetja því til að fólk lesi vel merkingar – sérstaklega ef hýðið er notað í bakstur eða drykki.
Innblástur greinarinnar og gögn fengin frá Organic Denmark.