Lífrænt Ísland kynnir - Móðir jörð í Vallanesi: Þar sem hringrásin og uppruninn mætast

Móðir Jörð í Vallanesi þarf vart að kynna, enda var býlið með þeim fyrstu til að hljóta lífræna vottun á Íslandi. Í Vallanesi búa og starfa hjónin Eymundur Magnússon og Eygló Björk Ólafsdóttir. Starfsemin er eflaust þekktust fyrir ræktun á kartöflum og korni, en á undanförnum árum hefur vörulínan stækkað verulega og tegundum fjölgað. Samhliða ræktuninni hefur verið byggð upp fjölbreytt ferðaþjónusta á staðnum í formi grænmetisveitingastaðar, gistiþjónustu og móttöku hópa. Vallanes er sögufrægur staður þar sem elstu heimildir um búsetu ná allt aftur til 12. aldar, en nafnið er dregið af staðsetningunni; nes á Völlum.

Jarðvegur sem uppspretta vöruþróunar
Vallanes nýtur mikillar sérstöðu vegna skipulagðrar ræktunar skjólbelta og skóga sem skapar einstaklega hagstæð skilyrði til akuryrkju. Þar er ræktað bygg, hveiti, repja og fjöldinn allur af grænmetistegundum í skjólsælu umhverfi þar sem iðulega er logn.
“Þau gildi sem við höfum að leiðarljósi í okkar vörum og afurðum eru gæði, náttúra og uppruni. Upprunaleiki er okkar meginstef og allar vörur Móður Jarðar eiga það sameiginlegt að vera sprottnar upp úr jarðveginum á staðnum. Það er ávallt ræktunin sjálf sem kemur vöruþróuninni af stað, sem hefur meðal annars leitt til fjölbreyttra vara úr byggi, okkar íslenska heilkorni. Sumt grænmeti fer ferskt frá býlinu en annað er fullunnið í krukku, svo sem sýrt grænmeti eða chutney. Þessi fjölbreytni er aðall búsins; mikið vöruúrval þar sem neytendur geta notið gæðanna beint frá uppsprettunni.”
Lífræn ræktun hringrásarkerfi í framkvæmd
Fyrir Eymund og Eygló er lífræn ræktun hin eina rétta leið til að rækta, hvort sem litið er til sjálfbærni, hollustu matvæla eða lýðheilsu. Þetta ræktunarform er hringrásarkerfi í framkvæmd og gott leiðarljós í allri matvælaframleiðslu, enda kristallast flest markmið í umhverfis- og loftslagsmálum í aðferðafræði lífrænnar ræktunar.
Sem áhugafólk um ræktun og góðan mat fá Eygló og Eymundur endalausan innblástur við það að höndla allt þetta góða hráefni sem starfið færir þeim.
“Það er dýrmætt að fá að vinna í samvinnu við umhverfið í góðri útiveru, sem eykur bæði hreysti og þol. „Okkur hefur tekist að búa til lifandi stað sem fólk vill heimsækja, sem er líka næring félagslega, og jákvæð viðbrögð neytenda eru gott vítamín!” segir Eygló.
Því fylgja vissulegarm einhverjar áskoranir að reka atvinnustarfsemi í dreifbýli, fjarri aðalmarkaðssvæðinu. Býlið er að mörgu leyti eins og lítið þorp; „það eru margar dyr sem þarf að loka á kvöldin” bætir Eymundur brosandi við.

Samfélag, samvinna og framtíðarsýn
Vallanes leggur áherslu á að vera opið býli þar sem fólk fær að njóta útiveru og þeirra gæða sem þar eru í boði. Fjölskyldan og nærsamfélagið gegna þar stóru hlutverki; á Austurlandi er mikil samheldni í því að nýta staðbundin hráefni og á viðburðum í Vallanesi eru það gjarnan heimamenn og fjölskyldumeðlimir sem miðla handverki eða sjá um skemmtun.
Samstarf við aðra bændur er einnig mikilvægur hlekkur fyrir Eymund og Eygló í Vallanesi. “Við kaupum hráefni frá öðrum íslenskum framleiðendum, líkt og gulrætur frá Akri Organic sem þau eru sérhæfð í, til að geta einbeitt okkur að okkar styrkleikum í korni og káltegundum. Á sama hátt nýtum við gæðavörur úr nærsamfélaginu á veitingastaðinn og viðburði til að styðja við það sem vel er gert á svæðinu” segir Eygló.
Eymundur segir framtíðarsýn þeirra skýra: “Að halda áfram að tvinna saman ræktun, fullvinnslu og ferðaþjónustu með áherslu á gæði og upplifun þeirra 10.000 gesta sem heimsækja okkur árlega.” Eygló bætir við “ mikilvægt er að lífrænar íslenskar afurðir fái greiðari leið til neytenda og meira pláss í verslunum, því þannig skapast hvati fyrir fleiri að velja þessa braut.”


