Hlaðvarp Lífræns Íslands endurvakið

Hvað liggur að baki matnum sem þú borðar og vörunum sem þú notar?
Á bakvið hverja vöru er saga – saga um framleiðsluferli, ræktunaraðferðir, umhverfisáhrif og dýravelferð. Í hlaðvarpinu köfum við ofan í það sem skilur lífræna framleiðslu frá annarri. Þótt vottunarmerkið sé aðeins eitt tákn, þá liggur heill heimur af hugsjónum, reglum og vinnubrögðum þar að baki.
Í þáttunum fær Anna María Björnsdóttir góða gesti til sín til að ræða um:
-Lífræna ræktun og landbúnað á Íslandi
-Sjálfbærni og umhverfisvernd
-Heilnæmi matvæla og dýravelferð
-Allt milli himins og jarðar sem tengist lífrænum lífsstíl.
Á árunum 2020 og 2021 hélt Berglind Häsler úti Hlaðvarpi Havarí – sem fjallaði um lífræna ræktun og framleiðslu, það lá í dvala í nokkur ár þar til hlaðvarp Lífræns Íslands fór formlega í loftið í febrúar 2026. Umsjón er í höndum Önnu Maríu Björnsdóttur verkefnastýru Lífræns Íslands.
#1 - Ingólfur Guðnason
Í þessum þætti fékk Anna María til sín góðan gest, Ingólf Guðnason garðyrkjufræðing, sem í byrjun árs 2026 var sæmdur heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu fyrir brautryðjendastörf sín og kennslu í lífrænni ræktun.
Ingólfur hefur verið leiðandi afl í íslenskri garðyrkju um árabil. Hann þróaði námsbraut í lífrænni ræktun matjurta við Garðyrkjuskólann á Reykjum og rak, ásamt eiginkonu sinni Sigrúnu Elfu Reynisdóttur, garðyrkjustöðina Engi þar sem þau stunduðu lífræna ræktun til margra ára.
Í þættinum ræðum við við Ingólf um:
Lífræna vottun: Af hverju hún er trygging fyrir neytendur og mikilvægt tæki fyrir framleiðendur.
Söguna bak við Engi: Reynsluna af því að reka lífræna garðyrkjustöð á Íslandi.
Menntun og framtíðina: Hvernig kennsla í lífrænum aðferðum mótar nýja kynslóð ræktenda.
Stöðuna í dag: Hvar stendur Ísland í samanburði við nágrannalöndin þegar kemur að lífrænni framleiðslu?