Krónan lækkar verð á lífrænum vörum

Í upphafi árs tilkynnti Krónan um 10% verðlækkun á öllum vörum frá vörumerkinu Grøn Balance. Með þessari ákvörðun er Krónan að bregðast við þeirri stöðu sem mörg íslensk heimili standa frammi fyrir í núverandi efnahagsumhverfi. Útgjöld heimila hafa aukist og þá sérstaklega vegna daglegra innkaupa. Með þessu móti leitast verslunin við að brúa bilið á milli hagkvæmni og gæða, svo neytendur þurfi ekki að fórna kröfum um heilnæmi og umhverfisvernd þrátt fyrir hærra verðlag.
Ísland í samanburði við nágrannaþjóðir
Hlutfall lífrænna og sjálfbærra innkaupa á Íslandi er enn lágt miðað við annars staðar á Norðurlöndum. Á Íslandi er aðeins um eitt prósent landbúnaðarlands með lífræna vottun, á meðan markaðshlutdeild lífrænna vara í Danmörku er tæp 12 prósent samkvæmt skýrslu The World of Organic Agriculture frá 2024. Þetta bendir til þess að á Íslandi séu mikil tækifæri til að auka vitund neytenda og þróa markaðinn áfram.
Slíkar verðlækkanir stórverslana á lífrænt vottuðum vörum hafa verið gerðar í nágrannalöndum okkar með góðum árangri. Þetta hefur til dæmis verið gert í Danmörku með herferðinni „Økologi for alle“ (Lífrænt fyrir alla). Meginmarkmið þeirrar herferðar var að brjóta niður þá mýtu að lífrænar vörur séu lúxusvara sem einungis efnað fólk hafi efni á og gera þær að raunhæfum valmöguleika fyrir alla. Stærsta hindrunin fyrir því að fólk kaupi lífrænt er oft verðið, en herferðir sem þessi vinna að því að minnka verðmuninn á lífrænum og hefðbundnum vörum.

Hagur samfélags og náttúru
Aukið framboð og betra aðgengi að lífrænum vörum gagnast samfélaginu öllu. Lífræn ræktun stuðlar að heilbrigðari jarðvegi og aukinni líffræðilegri fjölbreytni til framtíðar, auk þess sem hún tryggir bætta dýravelferð og lágmarkar útsetningu neytenda fyrir varnarefnaleifum.
Með því að gera lífrænar vörur að raunhæfum kosti fyrir alla er stigið mikilvægt skref í átt að ábyrgari matvælaframleiðslu gagnvart umhverfinu, dýrunum og neytendum.
Aðgengi að gæðavörum fyrir alla
Hjá Krónunni nær þessi verðlækkun til um 200 lífrænna og vottaðra vara sem ná yfir matvöru, barnavöru og hreinlætis-, húð- og heimilisvörur. Markmiðið er að gera ábyrg og heilnæm innkaup að raunverulegum valkosti fyrir almenning, en ekki einungis forréttindi fárra. Jafnvel litlar breytingar á neysluvenjum geta haft mikil og jákvæð áhrif á heilsu og umhverfi til lengri tíma litið.
Lífrænt Ísland fagnar þessu framtaki, enda er það mikilvægur liður í því að gera sjálfbæran lífsstíl aðgengilegri og einfaldari fyrir íslensk heimili.