Ingólfur Guðnason hlaut fálkaorðuna

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, sæmdi fjórtán Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum 1. janúar 2026. Meðal heiðurshafa var Ingólfur Guðnason, garðyrkjufræðingur, sem hlaut fálkaorðuna fyrir frumkvöðlastörf í lífrænni ræktun og kennslu. Ingólfur hefur um árabil kennt lífræna ræktun og þróaði námsbraut í lífrænni ræktun matjurta við Garðyrkjuskólann á Reykjum.

Við óskum Ingólfi hjartanlega til hamingju með fálkaorðuna, sem er svo sannarlega verðskulduð.  

Fálkaorðan 2
Fálkaorða

Auk Ingólfs hlutu 13 aðrir fálkaorðuna.

Það voru:

Anna Júlíana Sveinsdóttir, söngkona og söngkennari, fyrir framlag til klassískrar tónlistarmenntunar.

Ásgeir Sigurvinsson, fyrrverandi knattspyrnumaður, fyrir afreksárangur í knattspyrnu.

Bragi Valdimar Skúlason, hugmynda- og tónhöfundur, fyrir framlag til þróunar og varðveislu íslenskrar tungu.

Guðrún Þorgerður Larsen, jarðfræðingur, fyrir framlag til jarðvísinda og almannavarna.

Ingólfur Guðnason, garðyrkjufræðingur, fyrir frumkvöðlastörf í lífrænni ræktun og kennslu.

Karl Gunnarsson, sjávarlíffræðingur, fyrir framlag til rannsókna á botnþörungum, lífríki hafsins og vistkerfi strandsvæða.

Kristján Kristjánsson, heimspekingur og prófessor, fyrir kennslu- og fræðistörf á vettvangi siðfræði og mannkostamenntunar.

Laufey Lín Bing Jónsdóttir, tónlistarkona, fyrir framlag til tónlistar á Íslandi og á alþjóðavettvangi.

Pálmi V. Jónsson, lyf- og öldrunarlæknir og prófessor emeritus, fyrir framlag til öldrunarlækninga og nýsköpunar í öldrunarþjónustu.

Rósa Marinósdóttir, hjúkrunarfræðingur, fyrir sjálfboðastörf í þágu íþróttaiðkunar ungs fólks um allt land og framlag til samfélagsmála í heimabyggð.

Sigríður Sigurðardóttir, fyrrverandi safnstjóri, fyrir framlag til varðveislu torfbæja og annarra menningarminja.

Valgerður Benediktsdóttir, fyrrverandi réttindastjóri, fyrir framlag til framgangs íslenskra bókmennta á erlendri grundu.

Yngvi Pétursson, fyrrverandi rektor og kennari, fyrir framlag til menntunar og brautryðjendastarfs í tölvufræðikennslu á Íslandi.

Þórey Einarsdóttir, umsjónarkona, fyrir framlag til heimilislausra og bágstaddra.