Heimsókn VOR á BIOFACH
Í Febrúar síðastliðnum sótti hópur á vegum VOR stórsýninguna BIOFACH í Nurnberg í Þýskalandi heim. BIOFACH er í senn hefðbundin vörusýning og ráðstefna. Þetta er stærsta sérhæfða sýningin fyrir lífræna geirann í heiminum og laðar árlega að fjölda framleiðenda, sérfræðinga og frumkvöðla hvaðanæva að úr heiminum. Undanfarin ár hafa um 35.000 gestir frá allt að 140 löndum sótt BIOFACH og yfir 2.300 sýnendur kynna vörur sínar og hugmyndir. Þetta gerir BIOFACH að einstökum samkomustað þar sem hægt er að fylgjast með nýjustu straumum, hitta samstarfsaðila og sjá hvert þróunin stefnir í lífrænum landbúnaði á heimsvísu.


Lífræn framtíð
Þema BIOFACH 2026 var framtíðarsýn og ný kynslóð í lífrænum landbúnaði undir yfirskriftinni „Growing Tomorrow: Young Voices, Bold Visions“, sem endurspeglar mikilvægi nýsköpunar og kynslóðaskipta í greininni. Nýsköpun er einmitt órjúfanlegur hluti af BIOFACH. Ár hvert fer fram sérstök nýsköpunarkeppni, BIOFACH Best New Product Awards, þar sem tilnefndar eru vörur sem hafa ekki áður verið kynntar á sýningunni og gestir sýningarinnar taka sjálfir þátt í að velja sigurvegara með atkvæðagreiðslu. Þannig verða verðlaunin ákveðin vísbending um hvaða vörur og hugmyndir eru efst á baugi í lífræna geiranum hverju sinni. Sérstakt sýningarsvæði er tileinkað þessum nýju vörum og þar má sjá í hnotskurn hvernig lífrænn markaður er að þróast, hvaða hráefni eru að ryðja sér til rúms, hvaða
vinnsluaðferðir eru notaðar og hvernig framleiðendur skapa ný verðmæti úr lífrænum hráefnum.
Þessi áhersla á nýsköpun undirstrikar að lífrænn landbúnaður snýst ekki aðeins um framleiðsluaðferðir, heldur einnig um þróun nýrra vara, aukna verðmætasköpun og aðlögun að breyttum mörkuðum og væntingum neytenda. Fyrir smærri framleiðendur getur BIOFACH þannig verið vettvangur þar sem ný hugmynd fær alþjóðlega athygli og verður fyrsta skrefið í stærri þróun.



Dæmi um vörur sem kepptu um nýsköpunarverðlaunin
Lífrænn landbúnaður er ekki jaðarstarfsemi
Eitt af því sem verður strax ljóst á BIOFACH er að lífrænn landbúnaður er ekki lítil hreyfing á jaðrinum eins og sumir vilja meina. Þetta er alþjóðlegt kerfi, með eigin innviði, eigin fagþekkingu og eigin framtíðarsýn. Þarna eru ekki bara vörur, þarna eru lausnir. Jarðvegsbætandi aðferðir. Nýjar leiðir til að
vinna matvæli án þess að tapa næringargildi. Ný lífræn áburðarefni. Betri umbúðir. Betri hugsun.
Fyrst og fremst: fólk sem trúir því að landbúnaður geti verið hluti af lausninni, ekki vandamálinu. Lífræn ræktun og framleiðsla er metnaðarfull áætlun um sjálfbæra framtíð í matvælaframleiðslu.


Umhverfisvænni umbúðir
Tækifæri fyrir íslenskan lífrænan landbúnað
Fyrir íslenska lífræna framleiðendur er BIOFACH sérstaklega mikilvægur vettvangur. Þar gefst tækifæri til að kynnast nýjungum og þróun og tengjast alþjóðlegu neti framleiðenda og samstarfsaðila. Fjölbreytnin sem einkennir lífræna framleiðslu víða um heim er eitt það athyglisverðasta við sýninguna. Lönd með gjörólíkar náttúrulegar aðstæður kynna vörur sem byggja á staðbundnum auðlindum og sérstöðu. Þetta undirstrikar mikilvægi þess að íslenskur lífrænn landbúnaður nýti sína sérstöðu; hreint vatn og jarðveg, það hversu lítið er um sjúkdóma og meindýr, aðgengi að hreinum lífrænum hráefnum og síðast en ekki síst rekjanleika og traust framleiðsluferli. Staðsetning og veðurfar þarf ekki að vera takmarkandi, heldur þvert á móti forskot og stefnumótandi verkfæri.
Sameiginlegar áskoranir
BIOFACH er einnig mikilvægur vettvangur til að ræða sameiginlegar áskoranir, svo sem loftslagsbreytingar, aðgengi að mörkuðum, vottun og þróun neytendamarkaðarins. Þar kom skýrt fram að eftirspurn eftir lífrænum vörum er áfram sterk og lífræn framleiðsla gegnir lykilhlutverki í þróun sjálfbærra matvælakerfa. Markaðsöflum þarf þó að fylgjast með og veita aðhald, en margir eru til dæmis uggandi vegna fyrirhugaðra breytinga á upplýsingaskyldu til neytenda hvað genabreytingar varðar, auk þess sem grænþvottur viðgengst enn á alltof mörgum stöðum.
Heimsókn á BIOFACH undirstrikar mikilvægi þess að íslensk lífræn framleiðsla sé hluti
af alþjóðlegu samhengi. Lífrænn landbúnaður er alþjóðleg hreyfing sem byggir á sameiginlegum gildum um sjálfbærni, jarðvegsvernd, líffræðilega fjölbreytni og gagnsæi. Með þátttöku í alþjóðlegum viðburðum eins og BIOFACH geta íslensk samtök og framleiðendur fylgst með þróuninni, lært af reynslu annarra og lagt sitt af mörkum til áframhaldandi þróunar lífræns landbúnaðar á heimsvísu.

Innblástur og framtíðarsýn
BIOFACH er ekki aðeins vettvangur fyrir viðskipti heldur einnig innblástur. Þar má sjá hvernig lífrænn landbúnaður er að þróast sem raunhæfur og vaxandi hluti af alþjóðlegu matvælakerfi. Fyrir VOR og íslenskan lífrænan landbúnað er mikilvægt að vera hluti af þessari þróun. Heimsóknin staðfestir að íslenskur lífrænn landbúnaður hefur mikið fram að færa – og að framtíðin felur í sér bæði áskoranir og tækifæri. Heimsókn á BIOFACH er í senn upplifun og staðfesting. Staðfesting þess að lífræn vottun snýst ekki bara um framleiðsluaðferð – hún er hluti af stærri breytingu á því hvernig við hugsum um matvælaframleiðslu, auðlindanýtingu og framtíð landbúnaðar.
Höfundur: Elínborg Erla Ásgeirsdóttir,
formaður VOR og grænmetisbóndi.