Páskabygg frá Móðir jörð

Innihald
200 g Bankabygg eða Perlubygg
200 g gulrætur
½ ltr. kjötkraftur
½ stk. laukur
1 stk. hvítlauksgeiri
Fersk steinselja
1 msk malað turmeric
½ glas þurrt hvítvín
2 msk repjuolía
2 msk fita s.s. lardo, andafita eða beikonfita
20 g smjör
salt og pipar
Aðferð
Skolið byggið vel og látið vatnið renna vel af. Skolið gulræturnar og skerið í þykka bita. Saxið lauk smátt, hvítlauk og steinseljuna. Hitið olíuna og fituna í potti eða djúpri pönnu, mýkið laukinn í nokkra stund og brúnið grænmetið. Bætið hvítlauknum við sem og bygginu, steikið í nokkrar mínútur. Hellið víni saman við og látið gufa upp. Smakkið til með salti. Hellið tveimur ausum af sjóðheitum kraftinum út í og látið gufa upp á milli þess sem vökva er bætt í, hrærið vel í af og til. Þegar byggið hefur kraumað í 10 mín. bætið kryddjurtum saman við og sjóðið áfram í um 5 mínútur. Þegar byggið er soðið, bætið þá smjörklípu út á pönnu og blandið vel saman. Kryddið með ferskum pipar rétt áður en rétturinn er borinn fram og skreytið ferskri steinselju. Tilvalið er að setja annað hráefni ofan á byggið áður en rétturinn er lagður á veisluborðið.