
Lífræni dagurinn verður haldinn hátíðlegur í fimmta sinn laugardaginn 19. september. Einn stór viðburður verður í Kringlunni kl. 11-18 ásamt viðburðum á landsbyggðinni sama dag.
Í Kringlunni gefst almenningi einstakt tækifæri til að hitta bændur, smakka, versla og kynnast fólkinu á bak við lífrænu framleiðsluna, sem eins og staðan er í dag er aðeins um 1% á Íslandi. Árið 2024 gaf Atvinnuvegaráðuneytið út aðgerðaáætlun um að stórauka lífræna framleiðslu á Íslandi fram til ársins 2040, úr 1% í 10%.
Lífræni dagurinn er haldinn til að vekja athygli á lífrænni ræktun á Íslandi, tengja betur framleiðendur og neytendur og auka samtalið um lífræna ræktun. Um leið er markmiðið að sýna breiddina í íslenskri lífrænni framleiðslu.
Dagskráin er fjölbreytt og fyrir alla fjölskylduna. Í Kringlunni verður sett upp lífrænn markaður þar sem gestir geta bragðað á, keypt og spjallað milliliðalaust við lífræna bændur og framleiðendur víðs vegar að af landinu. Auk þess verður sérstök dagskrá fyrir börn, þar sem yngstu gestirnir fá að kynnast uppruna matarins á skemmtilegan hátt.
Kl. 13:00 mun Atvinnuvegaráðuneytið veita einum lífrænum framleiðanda viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur í lífrænni framleiðslu. Viðurkenningin er árlega veitt aðila sem hefur skarað fram úr í ræktun, framleiðslu eða framþróun lífrænna afurða á Íslandi.
„Í ár langaði okkur að fara með viðburðinn til fólksins og kynna lífræna framleiðendur fyrir nýjum hópi neytenda,” segir Anna María Björnsdóttir, verkefnastjóri dagsins.
Auk viðburðarins í Kringlunni verða einnig viðburðir á landsbyggðinni þennan dag, þar sem bændur og framleiðendur opna hjá sér með ýmsum hætti.
YRKJA – Syðra-Holti í Svarfaðardal
MÓÐIR JÖRÐ – Vallanesi, Egilsstaðir
Facebook viðburður – KRINGLAN
Í Kringlunni verða ýmsir framleiðendur á staðnum s.s.:
Biobú lífrænar mjólkurafurðir
Villimey lífrænar húðvörur
Yrkja – Syðra Holt – lífræn garðyrkjustöð
Breiðargerði – lífræn garðyrkjustöð
Móðir jörð – lífræn kornrækt og framleiðsla
Norður salt – lífrænt vottuð saltvinnsla
Sölvanes – lífrænt sauðfjárbú
Biobóndinn – lífræn kartöflurækt og fleira
Sólheimar – lífræn jurtastofa og kaffibrennsla
Akur Organic – lífrænar gulrætur o.fl.