Paul Holmbeck
Situr í stjórn IFOAM – Organics International, er fyrrum framkvæmdastjóri Organic Denmark (Økologisk Landsforening), framkvæmdastjóri Holmbeck EcoConsult.
Í aldarfjórðung var Paul Holmbeck í lykilhlutverki við að móta metnaðarfull markmið og stefnu Danmerkur í lífrænni framleiðslu. Hann byggði upp öflug samtök, Organic Denmark, sem urðu drifkraftur breytinga á markaði, í landbúnaði, í matvælaiðnaði og í mötuneytum hins opinbera. Hann hefur lagt mikið af mörkum til stefnumótunar um lífræna framleiðslu, bæði í Danmörku og innan Evrópusambandsins, m.a. innan nýsköpunar, fræðslu og ráðgjafar fyrir bændur, styrkjakerfi, markaðsþróun og neytendamerkingar.
Undir forystu Pauls var unnið að stefnu stjórnvalda og samstarfi bænda og verslana sem gerði lífrænar vörur að almennum valkosti í Danmörku. Dæmi um það er markmiðið um 60% lífrænt hráefni í opinberum mötuneytum. Annað dæmi er samstarf við stærstu verslunarkeðjur landsins. Ásamt markvissri upplýsingagjöf til neytenda og pólitískum aðgerðum hefur þetta gert Danmörku að leiðandi landi á heimsvísu í sölu lífrænna vara. Þar er markaðshlutdeild lífrænna vara 30–60% í grunnvörum á borð við mjólk, egg, hveiti og margar tegundir grænmetis og ávaxta.
Frá árinu 2020 hefur Paul veitt stjórnvöldum, fyrirtækjum og félagasamtökum víða um heim ráðgjöf um stefnumótun, hagsmunagæslu og markaðsþróun á sviði lífrænnar framleiðslu. Nýlega hefur hann komið að gerð nýrra aðgerðaáætlana og stefnuramma fyrir lífræna framleiðslu í Kanada, Hollandi, Úganda og Tansaníu. Framkvæmdastjórn ESB bauð honum einnig að kynna fyrirmyndarstarfshætti í stefnumótun á sviði lífrænnar framleiðslu fyrir embættismönnum úr ráðuneytum allra 27 aðildarríkjanna. Auk þess hafa samtök lífrænna framleiðenda, vinnslufyrirtæki og leiðandi verslunarkeðjur, meðal annars í Þýskalandi og Hollandi, leitað til hans eftir ráðgjöf til að auka sölu lífrænna vara.
Á málþinginu “Tíföldum lífræna framleiðslu – blásið til sóknar!” sem haldið er í Hörpu fimmtudaginn 19.nóvember ætlar Paul að halda erindið “Policies and market partnerships driving organic breakthroughs – lessons from Denmark”. Ásamt honum munu aðilar frá stofnunum landbúnaðarins, Bændasamtaka Íslands, Landbúnaðarháskóla Íslands, Ráðgjafamiðstöð Landbúnaðarins (RML) halda erindi. Fulltrúi atvinnuvegaráðuneytisins mun einnig halda erindi og aðilar frá lífrænum framleiðendum og stórverslunum.
Atvinnuvegaráðuneytið gaf út Aðgerðaáætlun um eflinu lífrænnar framleiðslu árið 2024 þar sem markmiðið er að tífalda lífræna framleiðslu fram til ársins 2040. Málþingið, sem fagráð í lífrænni framleiðslu stendur fyrir í samstarfi við VOR (félag um lífræna framleiðslu) og Lífrænt Ísland, með stuðningi frá Atvinnnuvegaráðuneytinu, hefur það að markmiði að samræma og skýra hlutverk ólíkra aðila í íslensku samfélagi til að við getum tífaldað lífræna framleiðslu.
Erindi Paul Holmbeck er Kl. 10:10–10:55
Policies and market partnerships driving organic breakthroughs – lessons from Denmark
Nánar: paulholmbeck.com
Skráningarhlekkur á viðburðinn í Hörpu: https://1kd5nym5tn8.typeform.com/to/ZQM95MbF
