Bláberjalegið lambalæri með bláberjasósu-frá Eydísi og Mána í Sölvanesi
Fyrir 6
Skerið 1/2 cm djúpar rendur ofan í kjötið og setjið það í plastpoka ásamt bláberjaleginum, geymið í kæli í 24 klst. Strjúkið þá megnið af bláberjaleginum af kjötinu og geymið löginn. Steikið lærið í í 180°C heitum ofni í 1 1/2 klst. Berið lærið fram með bláberjasósunni, bökuðum kartöflum og grænu salati.

Bláberjalögur
100g bláber
1-2 mask bláberjasulta
1 dl rauðvín
1 msk bláberja- eða balsamedik
1 tsk. Pipar
1 msk. Timianlauf
1 dl olía
Setjið allt í matvinnsluvél og maukið vel..
Bláberjasósa
3 dl vatn
1 mak lambakjötskraftur
1 dl bláberjalögur
Sósujafnari
40g kalt Smjör í teningur
Salt og nýmalaður pipar
Þegar 10 min eru eftir af steikingu lambsins er vatninu hellt yfir lambið og látið vera í 5 min. Hellið þá soðinu í pott ásamt bláberjalegi og lambakjötskrafti og þykkið með sósujafnara. Takið pottinn af hellunni og hrærið smjör saman við þangað til það er bráðnað. Smakkið til með salti og pipar.